18. september 2023
Hlýtur brautryðjendaverðlaun IFIP alheimssamtaka í upplýsingatækni
18. september 2023
Hlýtur brautryðjendaverðlaun IFIP alheimssamtaka í upplýsingatækni
Dr. Marta K. Lárusdóttir, prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, hlaut nýverið brautryðjendaverðlaun á sviði samskipta manns og tölvu frá tækninefnd 13 í IFIP, sem eru alheimssamtök í upplýsingatækni.
Marta hefur stundað rannsóknir um árabil á þátttöku notenda í hugbúnaðargerð, með áherslu á að auðvelt verði að nota hugbúnaðinn. Í umsögn dómnefndar kemur fram að framlag rannsókna Mörtu til innleiðingar notendamiðaðrar hugbúnaðargerðar í hugbúnaðariðnaði sé framúrskarandi. Einnig kemur fram að Marta hefur verið mjög virk í skipulagningu ráðstefna og ýmis konar þjónustu við vísindasamfélagið á sviðinu.

Marta tekur fram að þessi verðlaun séu mikill heiður, þar sem einungis fáir útvaldir hafi fengið verðlaunin til þessa.
Verðlaunin veita mér vind í vængina til að halda ótrauð áfram á minni vegferð. Ég er mjög þakklát fyrir þessa viðurkenningu á mínum störfum og áherslum.
Marta lauk doktorsprófi í samskiptum manns og tölvu frá konunglega tæknilega háskólanum í Stokkhólmi (KTH), Licentiate prófi í tölvunarfræði frá Uppsalaháskóla, meistaraprófi í tölvunarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og BS prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík síðan árið 2000 við kennslu og rannsóknir.
Nýjustu greinarnar
Sjá allar greinar