12. september 2023
Námsleikir til að bylta stærðfræðinámi barna
12. september 2023
Námsleikir til að bylta stærðfræðinámi barna
Evolytes varð til við þverfaglegar rannsóknir í sálfræði og tölvunarfræði í hugbúnaðarkerfinu Aperio við Háskólann í Reykjavík. Þriggja ára rannsóknir á áhrifum styrkingarhátta í tölvuleikjum leiddu til þróunar námsleiks sem nýtir blöndu styrkingarhátta til að hámarka áhuga og árangur barna í stærðfræði. Rannsóknin sýndi að börn lærðu að meðaltali fjórfalt hraðar í námsleiknum og börn með undirliggjandi námsörðugleika lærðu allt að tólffalt hraðar.

Hlutverk fyrirtækisins Evolytes er að umbylta stærðfræðinámi með skemmtanavæddu, gagnadrifnu og einstaklingsmiðuðu námskerfi sem byggir á leiðandi kenningum og rannsóknum í sálfræði, menntavísindum og tölvunarfræði til að hámarka árangur nemenda í stærðfræði. Viðskiptavinir Evolytes á síðasta skólaári voru alls 2.800 nemendur í 43 skólum.
Mathieu G. Skúlason er framkvæmdastjóri Evolytes og forritari.
Framtíðarsýn okkar varðandi fyrirtækið er að Evolytes hámarki árangur nemenda og umbylti kennslu með rauntíma gagnagreiningu og yfirsýn. Eins að námskerfið valdefli nemendur, kennara og menntayfirvöld með rauntíma gagnagreingu.
Snemma árs 2022 voru sprotafyrirtæki með tengsl við Háskólann í Reykjavík kortlögð. Verkefninu var ætlað að fanga þau fyrirtæki sem stofnuð voru á meðan á námi eða störfum við skólann stóð frá stofnun HR árið 1998. Verkefnið dró fram yfir 60 sprotafyrirtæki með bein tengsl við skólann. Flest þessara fyrirtækja spretta upp úr lokaverkefnum nemenda og/eða rannsóknum starfsfólks. Þessi umfjöllun er liður í því að vekja athygli á þessum HR-sprotum!
„Háskólinn í Reykjavík er uppspretta og driffjöður nýsköpunar og leggur áherslu á að efla frumkvöðlafærni. HR skapar tækifæri fyrir hagnýtingu þekkingar og tækni með rannsóknum, kennslu og tengslum við atvinnulíf og samfélag." –Úr stefnu HR.
Nýjustu greinarnar
Sjá allar greinar