Námið
Rannsóknir
HR
Neon

Brautskráning

Háskólinn í Reykjavík brautskráir kandídata með háskólagráður og nemendur með lokapróf úr Háskólagrunni HR.

Ertu að útskrifast?

Háskólinn í Reykjavík brautskráir kandídata þrisvar sinnum á ári, í júní, október og í janúar/febrúar. Hér fyrir neðan má sjá ýmsar gagnlegar upplýsingar um brautskráningar sem haldnar eru í Hörpu og í Sólinni frá Háskólagrunni HR. Í dagatali HR má sjá dagsetningar næstu brautskráninga.

Ef nemendur ætla að fresta útskrift er mikilvægt að senda póst á nemendaskra@ru.is. Ef nemendur geta ekki mætt á útskriftina er mikilvægt að senda póst á utskrift@ru.is.

Ef ég get ekki mætt á athöfnina, hvernig nálgast ég útskriftargögnin mín?

Brautskráningargögn eru aðgengileg strax næsta virka dag eftir brautskráningu. Ef þú getur ekki sótt gögnin þín af einhverjum ástæðum, getur þú haft samband við þjónustuborðið og þér verður hjálpað að fá gögnin í hendur. 

Brautskráning

Ef nemendur ætla að fresta útskrift er mikilvægt að senda póst á nemendaskra@ru.is. Ef nemendur geta ekki mætt á útskriftina er mikilvægt að senda póst á utskrift@ru.is

Hvenær er athöfnin?

Kandídatar eru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík þrisvar sinnum á ári, í janúar/febrúar, júní og október hvert ár. Í dagatali HR má sjá dagsetningar næstu brautskráninga.

Skráning í útskrift

Nemendur skrá sig sjálfir í útskrift í Myschool á tímabilinu febrúar/mars og október/nóvember. Nánari dagsetningar má sjá í dagatali HR.

En ef ég er ekki skráð/ur?

Ef þú ert ekki skráð/ur í útskrift, vinsamlega sendu beiðni um skráningu í útskrift á nemendaskra@ru.is

Hvað tekur athöfnin langan tíma?

Gert er ráð fyrir því að athöfnin taki um eina til tvær klukkustundir.

Hvað má ég taka með mér marga gesti?

Miðað er við að hverjum útskriftarkandídat fylgi þrír til fjórir gestir. Það þarf enga aðgöngumiða á útskriftina, gestir bara mæta. Opnað er inn í sal fyrir gesti 15 mínútum fyrir athöfn. 

Prófskírteini og skírteinisviðaukar

Við brautskráningu eru afhent prófskírteini á íslensku og ensku. Skírteinisviðaukar og námsferlar eru afhent rafrænt í gegnum Portal í Canvas.

Brautskráning HR
Frá útskrift Háskólans í Reykjavík í Hörpu

Skírteinisviðauki (e. diploma supplement) innihalda hlutlægar lýsingar á námi þínu ásamt stuttri lýsingu á íslensku háskólakerfi. Viðaukinn er samkvæmt fyrirmælum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og hér má nálgast nánari upplýsingar: 

Skírteinsviðauki og námsferill þurfa oft að fylgja með umsóknum um nám í erlenda háskóla.  Prófskírteini eru ekki endurútgefin og því mikilvægt að geyma þau vel.

Útskrift úr Háskólagrunni HR

Nemendur Háskólagrunns HR að setja upp húfurnar við útskrift
Nemendur Háskólagrunns HR að setja upp húfurnar við útskrift
Hvenær er útskrift?

Nemendur eru brautskráðir frá frumgreinadeild í Sólinni í HR, yfirleitt í júní. Í dagatali HR má sjá dagsetningar næstu brautskráningar.

Hvenær á ég að mæta?

Nemendur mæta klukkutíma fyrir athöfnina í myndatöku og farið er yfir framkvæmd athafnarinnar. Nemendum er boðið upp á hressingu og verða svo að vera sest á sinn stað í Sólinni 15 mínútum fyrir athöfn. 

Láttu vita ef þú ætlar ekki að mæta

Ef nemandi sér fram á að mæta ekki á brautskráningu er mjög mikilvægt að láta vita til að hægt sé að skipuleggja viðburðinn samkvæmt fjölda. Það er nóg að senda tölvupóst á: vidburdir@ru.is. Prófskírteini eru aðgengileg frá mánudegi eftir útskrift í afgreiðslu HR.

Athöfnin

Brautskráning fer fram í Sólinni og tekur um 40 - 50 mínútur.

Dagskrá:
  • Setning
  • Ávarp eldri nemanda
  • Ávarp útskriftarnema
  • Tónlistaratriði
  • Brautskráning
  • Ef nemendur ætla að fresta útskrift er mikilvægt að senda póst til: nemendaskra@ru.is
  • Ef nemendur geta ekki mætt á útskriftina er mikilvægt að senda póst á: vidburdir@ru.is

Fara efst