Nemendaráðgjöf

Starfsfólk
Ráðgjöf og sálfræðiþjónusta
Viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa
Náms- og starfsráðgjafar veita upplýsingar um námið við HR, aðstoða einstaklinga við að ná árangri í námi og átta sig á áhuga sínum og styrkleikum. Þar er einnig hægt að taka áhugasviðspróf gegn vægu próftökugjaldi.
Boðið er upp á einstaklingsviðtöl, hópráðgjöf og fjölbreytt, þverfagleg námskeið. Ef þið finnið ekki tíma sem hentar í gegnum Kara connect þá vinsamlegast sendið okkur tölvupóst: namsradgjof@ru.is
Sálfræðiþjónusta
Sálfræðiþjónusta Háskólans í Reykjavík er gjaldfrjáls fyrir alla nemendur skólans. Þjónustan heyrir undir Náms- og starfsráðgjöf Háskólans í Reykjavík og er staðsett í Sólinni, á fyrstu hæð. Þar starfa tveir sálfræðingar auk framhaldsnema í klínískri sálfræði, sem eru undir faglegri handleiðslu.
Þjónustan er í formi viðtala og námskeiða en breytilegt er hvers konar þjónusta hentar hverjum og einum. Nemendur geta valið að skrá sig beint á auglýst námskeið eða bókað viðtal til að ræða hvaða möguleikar á þjónustu eru í boði. Sálfræðingar þjónustunnar bjóða upp á ráðgjöf og stuðning en hafa því miður ekki tök á að bjóða langtímameðferð, né tíð viðtöl. Í sumum tilfellum er nemendum vísað áfram á aðra viðeigandi þjónustu innan heilbrigðiskerfisins.
Óska eftir sálfræðiviðtali: salfraedithjonusta@ru.is
Sérúrræði
Sérúrræði í námi – fyrir hverja?
( Hlusta )
Nemandi getur sótt um sérúrræði í námi, skili hann inn vottorði/greiningu frá viðurkenndum fagaðilum sem vinna með hamlanir eða aðrar hindranir eins og dæmi eru um hér fyrir neðan. Athugið að ekki er veittur lengri próftími fyrir prófkvíða einan og sér heldur þarf viðkomandi að sýna fram á greiningu kvíðaröskunar skv. DSM kerfinu og/eða meðferð hjá fagaðila. Slík staðfesting getur veitt tímabundinn samning, í eitt misseri eða tvö eða að hámarki ár.
- Sjónskerðingu, blindu/lögblindu
- Heyrnarskerðingu, heyrnarleysi
- Sértæka námsörðugleika s.s. lesblindu
- Taugasálfræðileg vandamál s.s., AD(H)D, tourette, einhverfuróf
- Hreyfihömlun s.s. fatlanir eða tímabundna hreyfihömlun vegna slyss
- Langvarandi veikindi s.s. krabbamein, gigt, MS, MND eða geðfatlanir.
Persónuleg ráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf býður upp á persónulega ráðgjöf og/eða eftirfylgni fyrir nemendur með fötlun eða sértæka námsörðugleika. Einnig getur náms- og starfsráðgjafi haft milligöngu um myndun minni stuðningshópa.
Sérúrræðanefnd HR
Hlutverk Sérúrræðanefndar er að leggja mat á beiðnir nemenda sem sækja um lengri tíma í lokaprófum og/eða aðra þjónustu á námstímanum á grunni sértækra námsörðugleika, fatlana, hamlana eða veikinda. Nefndina skipa prófstjóri, fulltrúi akademískra deilda, trúnaðarlæknir HR, sérfræðingur í læsi og náms- og starfsráðgjafi sem situr í nefndinni sem fulltrúi nemenda.
Nefndin getur samþykkt eða hafnað óskum um sérúrræði í prófum á grundvelli þeirra vottorða eða gagna sem nemandi hefur lagt fram er varða hömlun hans í námi. Nefndinni er heimilt að synja nemendum um sérúrræði liggi það fyrir með óyggjandi hætti að námið sé þess eðlis að nemandi nái ekki að uppfylla lærdómsviðmið skólans.
Sækja um sérúrræði
Umsóknir um sérúrræði í námi skulu berast til náms- og starfsráðgjafa í gegnum Canvas; nemandi sækir um með því að hengja skjölin (vottorð eða greiningu) við umsókn og sendir í gegnum Portal í Canvas, undir náms og starfsráðgjafar (Career and Guidance counsellor) og smellir þar á námsaðstoð: beiðni um aðstoð (Student Assistance: Request an assistance).
Sérúrræðanefnd HR leggur mat á beiðnir nemenda sem sækja um lengri tíma í lokaprófum og/eða aðra þjónustu á námstímanum á grunni sértækra námsörðugleika, fatlana, hamlana eða veikinda.
ÞAU sem glíma við hamlanir sem líta má á sem tímabundnar og hægt er að vinna með, lækna eða gera viðráðanlegri, sækja um sérúrræði fyrir hverja önn eða fyrir skólaárið. Ef hömlun nemanda er varanleg, þá sækir nemandinn um sérúrræði í upphafi náms og er skráður með sérúrræði út námstímann við HR.
Ráðlagt er að sækja um sérúrræði tímanlega eða fyrir haustönn fyrir lok september og vorönn fyrir lok febrúar.
Val á námi
Mikilvægt er að taka mið af eigin áhugasviðum þegar ákvarðanir um nám og störf eru teknar.

Áhugasviðspróf
Bendill
Bendill er samheiti fyrir fjórar ólíkar kannanir sem meta starfsáhuga fólks á ólíkum aldri. Niðurstöður birtast myndrænt. Bendill ýtir undir sjálfsskilning og öflun upplýsinga um nám og störf. Náms- og starfsráðgjafar HR hafa réttindi til að leggja fyrir og túlka könnunina.
- Bendill - III Tekur mið af þörfum fullorðinna sem hafa fyrst og fremst hug á háskólanámi.
- Bendill IV Tekur mið af þörfum fullorðinna sem eru á vinnumarkaði
Nánari upplýsingar
Könnunin er lögð fyrir hjá náms- og starfsráðgjöfum og tekur ferlið um klukkustund. Bendill er rafræn áhugakönnun og niðurstöður liggja strax fyrir. Könnunin kostar 6000 krónur sem greiðist á þjónustuborðinu áður en viðtal hefst. Vinsamlegast komDU með eigin tölvu til að taka könnunina á en látið vita ef slíkt er ekki valkostur svo hægt sé að gera aðrar ráðstafanir. Ef þú hefur áhuga á að taka Bendil, vinsamlegast settu þig í samband við náms- og starfsráðgjöf HR, namsradgjof@ru.is eða bókaðu í gegnum bókunarkerfið okkar.
VIA styrkleikakönnunin
Það getur reynst hjálplegt að taka styrkleikakönnun á borð við VIA til að átta sig á hvar styrkleikar manns liggja. Könnunin mælir 24 skapgerðarstyrkleika fólks. Hún er vísindalegt mælitæki og hafa yfir sex milljónir manna tekið könnunina í dag í yfir 190 löndum. Hún byggist á sex flokkum; visku, hugrekki, manngæsku, réttlæti, yfirvegun og vitundarstigi.
Könnunin byggist á því að taka afstöðu til 120 setninga en könnunin er á ensku og niðurstöður sína 24 sameiginlega skapgerðarstyrkleika fólks sem hægt er að flokka niður eftir því hvort þetta eru toppstyrkleikar, meðal eða minna notaðir styrkleikar. Hér getur þú tekið könnunina þér að kostnaðarlausu.
Gott að hafa í huga
Er þörf á setja upp styrkleikagleraugun?
Það getur verið mjög hjálplegt fyrir einstakling sem er á þeim tímamótum að velja sér nám við hæfi að þekkja styrkleika sína. Styrkleikar eru, samkvæmt vísindamönnum sem hafa rannsakað efnið, náttúrulegir hæfileikar sem koma fram í hegðun, tilfinningum og hugsunum sem gerir viðkomandi kleift að takast á við verkefni á sem áhrifaríkastan hátt með farsælustu útkomuna.
Rannsóknir sýna að einungis 1/3 fólks veit hvaða styrkleika það hefur. Styrkleikar eru náttúrulegir hæfileikar sem koma fram í hegðun, tilfinningum og hugsunum sem gerir viðkomandi kleift að takast á við verkefni á sem áhrifaríkastan hátt með farsælustu útkomuna.
Til að gera sér betur grein fyrir styrkleikum sínum er gott að byrja á að velta fyrir sér eftirfarandi spurningum;
- Hverjir eru styrkleikar mínir?
- Hvað er mér eðlislægt?
- Hvað veitir mér jákvæða orku?
Til að svara þessum spurningum getur reynst vel að rifja upp stundir þar sem þú hefur náð að njóta þín algjörlega í núinu og fyllst af orku. Þegar þú vilt ná að hámarka þína styrkleika er gott að vera í slíku flæði þar sem þú færð þá tilfinningu að vera með fulla athygli á verkefninu.
Einnig er gott að hafa í huga að manneskjan hefur tilhneigingu til að einblína á það neikvæða eða veikleika í stað hið jákvæða eða styrkleika okkar. Þetta virðist manneskjunni eðlilslægt og er talað um tilhneigingu til hins neikvæða (e. Negativity Bias). Því er mikilvægt að staldra við og skoða hvað er að skila árangri og hvað ekki.

Fræðsluefni
Hér má sjá ýmiskonar efni sem miðar að því að hjálpa nemendum að ná sem bestum árangri í sínu háskólanámi.
Háskólanám getur verið ansi krefjandi og rekast nemendur oft á ýmsar hindranir á námstíma sínum.
Háskólanám kallar oft á breyttar námsaðferðir og er því mikilvægt fyrir hvern og einn að átta sig á námsvenjum sínum. Flestir hafa tamið sér ákveðin vinnubrögð, meðvitað eða ómeðvitað. Sjálfsagt er að nota áfram þær námsaðferðir sem reynst hafa vel en í sumum tilfellum þarf að gera ákveðnar breytingar. Í upphafi háskólanáms er tækifæri til að endurskoða námsvenjur og bæta það sem betur má fara. Mikilvægt er að taka lítil skref og ætla sér ekki of miklar breytingar í einu.
Námstækni er ákveðið hjálpartæki sem auðveldar nemendum að tileinka sér nýja þekkingu. Góð námstækni veitir nemendum aðhald og er tæki til tímasparnaðar. Gott skipulag, markmiðasetning og jákvætt hugarfar er grunnurinn að góðri námstækni.
Í undirflokkunum hér að neðan má finna ýmiskonar fræðsluefni sem miðar að því að hjálpa nemendum að ná sem bestum árangri í sínu háskólanámi, hvort sem það snýr að því að skipuleggja tíma sinn betur, beita gagnlegri lestrartæki eða vinna að bættri líðan.
- Árangursríkar námsaðferðir
- Tímastjórnun og markmiðasetning
- Nýttu styrkleika þína í námi
- Hvernig landar þú draumastarfinu? - Ferilskrárgerð og kynningarbréf
- Láttu þér líða vel í námi
- Kvíði í námi
- Ekki keyra þig út - Ráð til að takast á við álag og streitu
- Hamingjusturta - Ertu í mínus en vilt komast í plús?
- Undir yfirborðinu – Leiðir til að eiga í farsælum samskiptum
Starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafar geta verið nemendum innan handar eftir að námi lýkur. Þegar kemur að því að sækja um störf þarf að huga að ýmsu, svo sem gerð ferilskráar, kynningarbréfs og undirbúningi fyrir starfsviðtal.
Undirbúðu þig
Góður undirbúningur er lykillinn að velgengni, bæði við gerð ferilskrár og í atvinnuviðtali. Þó að sjálfsþekking skipti miklu máli er gott að bera hugmyndir undir aðra.
Ferilskrá
Leggðu vinnu í útlit og uppsetningu. Það eykur líkurnar á að ferilskráin þín verði skoðuð nánar. Þú getur fundið ýmis ferilskrárform í Word og á netinu. Ferilskráin á að vera áhugaverð og sönn lýsing á þér.
Veltu fyrir þér:
- Hver er ég?
- Hvaða eiginleikum og hæfileikum bý ég yfir?
- Þekking og hæfni úr námi og fyrri störfum eða verkefnum
- Hverju hef ég áhuga á?
- Hvert stefni ég eftir nám?
- Framtíðarsýn
- Markmið
- Hvað hef ég fram að færa umfram aðra með sömu menntun?
Hámarkaðu upplýsingar og lágmarkaðu texta:
- Nafn og upplýsingar
- Inngangur
- Menntun
- Starfsreynsla
- Tölvu- og tungumálakunnátta
- Hæfni og önnur kunnátta
- Annað
- Umsagnaraðilar
Ferilskráin má ekki vera lengri en 2 blaðsíður. Vandaðu málfar og allan frágang. Láttu lesa hana yfir því ein villa er einni villu of mikið.
Aðlagaðu ferilskrána þína að hverju fyrirtæki. Ef ferilskráin skilar þér ekki viðtölum, þá þarftu að bregðast við því.
Kynningarbréf
Kynningarbréf er mikilvægt fylgiskjal með ferilskránni. Bréfið er ætlað til að færa rök fyrir því hvers vegna þú sért rétti aðilinn í starfið. Í bréfinu fléttar þú saman þeim kröfum sem settar eru fram í atvinnuauglýsingunni eða starfslýsingunni að þínum eiginleikum og fyrri reynslu. Athugaðu að gott er að nota sama orðalag og er í auglýsingu og mikilvægt er að kynna sér fyrirtækið vel. Kynningarbréfið á ekki að vera nema hálf til ein blaðsíða.
Starfsviðtal
Þegar í starfsviðtal er komið hefur upphaf og lok viðtalsins mikið að segja. Hvernig kemur þú fyrir í eigin persónu og hvernig viltu að vinnuveitandi muni eftir þér? Í viðtalinu hefur þú tækifæri á að sannreyna þá færni sem þú útlistar í ferilskránni og kynningarbréfi. Taktu því ekki persónulega ef atvinnuleitin gengur illa heldur líttu frekar á það sem tækifæri til þess að endurskoða ferilskrána og leita á breiðari mið.
Umsóknarfrestur fyrir sérúrræði í námi
- Umsóknarfrestur fyrir haustönn: 1.október
- Umsóknarfrestur fyrir vorönn: 1.mars.